Kerlingarfjöll

„Uppgötvaðu hið dularfulla í hjarta hálendis Íslands“

Kerlingarfjöll er hringlaga fjallgarður sem nær yfir 150 ferkílómetra með tindum sem ná 1.500 metra hæð. Víðáttumikil hálendisútsýni eru umlykkt af stórbrotnu jöklunum, Hofsjökli og Langjökli, og bjóða göngufólki upp á stórkostlegt útsýni.

Fjöllin myndðust fyrir 300.000 árum í röð gosa undir jökli og breytast með árstíðunum. Á sumrin skapa leifar snjós og íss óhlutbundin mynstur yfir hinu harða landslagi. Á veturna umbreytist svæðið í ósnortna hvíta víðáttu þar sem snjór hylur hvera-hrygginn og dalina.

Kerlingarfjöll eru því fullkominn staður fyrir ævintýragjarna allt árið um kring. Ýmistlegt er í boði, allt frá gönguferðum og fjallahjólreiðum til skíðagöngu í óbyggðum. Eftir daginn er hægt að njóta á veitingastaðnum og slaka svo á undir stjörnunum í jarðhitalaugunum.

Sumartímabilið í Kerlingarfjöllum (15. júní – 30. september)

Vetrartímabilið í Kerlingarfjöllum (1. október – 14. júní)

Aðeins er aðgengilegt með 4×4 jeppa eknum af fagmanni á vetrarmánuðum.

Shopping Cart