Velkomin!

Við erum þrjár vinkonur sem elskum að vera úti í náttúrunni, stunda yoga, hreyfa okkur og njóta. Við trúum því að það að taka sér tíma, hægja á öllu, njóta fegurðar náttúrunar endurnýji orku og gleði.

Hugmyndin um vellíðunarvettvanginn DripDrop hefur blundað í okkur í nokkur ár. Óteljandi samtöl, matcha- og kaffibollahittingar, með og án barna — já stundum var mikið fjör — mótuðu hugmyndina að DripDrop, vettvang fyrir heilsu og vellíðan hér á Íslandi. Vettvang sem tengir sjálfstætt starfandi leiðbeinendur, kennara og leiðsögufólk saman og auðveldar þeim að deila viðburðunum sínum og gera þá sýnilega. Og að sama skapi, hafa þá viðburði sem eru í boði hér á Íslandi aðgengilega á einum stað, bæði fyrir heimafólk og ferðamenn.

DripDrop á þannig að mynda samfélag og tengja fólk við upplifanir, náttúru og eigin krafta.






Vertu með og látum þetta verða að veruleika!

Hildur · Dagný · Inga

Shopping Cart